Sunday, June 14, 2009

Stofan


Þarna er stofan í þessari skrítnu íbúð sem við búum í hér í Arequipa. Inngangurinn er hjá sófanum, þessum rauða flauels-sófa, sem er tvímælalaust óþægilegasti sófi í heimi. Maður situr á spýtunum og gormunum og það er eiginlega ómögulegt að finna góða stellingu, svo við endum oft í því að draga dýnu úr rúmunum fram til að liggja á þegar við horfum á kassann. En stofan er stór, og ég man þegar við komum hingað fyrst, þá hélt ég að stofan væri lobby í afgreiðslu gistihússins, þetta er eitthvað svo skrítin stofa. Svo höfum við nú bara vanist þessu og líður voða vel hérna.

No comments:

Blog Archive