Sunday, June 14, 2009

Ponsjó


Eins og það er heitt og gott á daginn hérna, þá verður bara skítkalt hérna á kvöldin, og þá sérstaklega inni í íbúðinni okkar, því hún er jú ekki upphituð. Þá er gott að grípa í ponsjóinn sinn, þeir eru alger snilld! Gerðir úr Alpaca ull, mjúkir og hlýjir og við erum búin að kaupa okkur nokkra til að hafa á svölum sumarkvöldum heima á pallinum. Ég veit ekki með hárið á mér, það er bara slétt þarna, svo annað hvort hefur Gaui verið einstaklega erfiður þennan dag, eða þá að ég hef eins og venjulega átt í vandræðum með spænskuna og keypt eitthvað sjampó sem sléttir hárið í einum hárþvotti! Segjum seinni kostinn líklegri.... það er svona diplómatískt korrekt..

No comments:

Blog Archive