Sunday, December 7, 2008

Sundlaugin á hótelinu

Það var rosaleg gleði með þessa litlu, en fínu sundlaug á hótelinu. Hótelið er ansi nálægt strönd, svo við vorum yfirleitt ein með sundlaugina og það var geggjað. Hér á Barbados höfum við náttúrulega einungis verið í sjónum, svo strákarnir hafa saknað þess aðeins að komast í sundlaug. Hér eru Gaui og Viktor í bardaga,var oft mikið fjör... og Gaui stundum bara hreint ansi hissa á því hvað guttinn er orðinn sterkur!

No comments: