Monday, December 1, 2008

Hann á afmæli í dag!!!!

Í dag er merkisdagur, hann Orri er orðinn 6 ára!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Við byrjuðum daginn á því að fara syngjandi með djús og beyglu í rúmið til hans, ásamt nokkrum pökkum. Svo fékk hann vísbendingu um hvar fleiri pakkar væru, og þar vísbendingu um annan pakka og svo koll af kolli þar til allir pakkar voru fundnir og Orri búinn að opna þá og gera nokkrar armbeygjur í millitíðinni. Hann er rosalega ánægður með gjafirnar og sendir ástarþakkir til fjölskyldunnar heima!! Nú erum við að fara á ströndina og Orri ætlar að prófa nýja brettið sitt, strandtennisspaðana og ætlar að sýna fólki fínu Iron man-tattóin sín í leiðinni :)

2 comments:

Anonymous said...

Til hamingju með daginn Orri :-)
Bestu kveðjur frá Magnúsi Kára og okkur öllum, Guðrún

Anonymous said...

Til hamingju með gærdaginn Orri og til hamingju með morgundaginn Vala.
Við öfundum ykkur að hitanum og sjónum.
Við erum í kulda - miklum kulda - frosti- Freyja þarf að hugsa sig um áður en hún lætur draga sig út á morgnanna.
Ástarkveðjur moster María