Monday, December 15, 2008

Arnór og Steve Gerrard




Anrór var á námskeiði með þjálfurum frá Liverpool, en Kick Start er vinalið við Liverpool og þjálfarar frá þeim koma reglulega hingað til að fylgjast með strákunum. Arnór var kallaður upp eftir tímana með þeim og fékk brúsa sem er áritaður af þjálfurunum (þeir hafa spilað með varaliði Liverpool), og það sem meira er, fékk Arnór gefinst áritaða ljósmynd af sjálfum fyrirliðanum Steve Gerrard. EKTA, thank you very much.




Hérna er hann að fá þetta afhent, en þetta var líka síðasta æfingin sem hann tók þátt í með Kick Start í bili (segi í bili því maður veit aldrei.... aldrei segja aldrei, halda öllum dyrum opnum, tækifærin leynast víða!), því nú eru þeir komnir í jólafrí, byrja ekki aftur fyrr en 15. janúar, en við förum héðan 12. jan.

No comments: