
Sunday, August 2, 2009
Í Lux hjá pabba

Hugmynd að innréttingu

Gaui lúinn..

París!!
Og þá er það Evrópa aftur!!

Thursday, July 9, 2009
Huaca Pucllana

Við fórum að skoða þessar frægu rústir í miðborg Lima í fyrradag en þetta er heilagur staður sem byggður var um 5-800 eftir Krist. Þetta er gegnheill pýramídi (þeir eru nokkrir í Perú) og svo torg og nokkur fleiri mannvirki. Þetta tilheyrði Lima-kúlturnum, en það er flokkur sem var sem sagt uppi milli 5-800 eftir Krist. Staðurinn var notaður sem fórnarstaður fyrir guðina, þó sjaldan sem mannlegar fórnir voru færðar, "eingöngu" gert á tuttugu ára fresti, og þá alltaf ung stúlka á aldrinum 12-25 ára, því þær þóttu svo hreinar. Svæðið var mun stærra áður, en var ekki farið að varðveita það fyrr en kringum 1980, svo það er búið að byggja yfir þó nokkuð af rústunum. Svo á tímabili (held kringum 1960) þótti voða gaman að halda mótórhjólakeppnir á pýramídanum og þar í kring. Núna er hins vegar mikið kapp lagt í að vernda svæðið og endurreisa það sem hefur hrunið. Þetta er allt gert úr steinum sem þeir bjuggu sjálfir til, úr leir og skeljum og það sem hefur hjálpað til við að vernda þetta er að það rignir eiginlega aldrei í Lima. Síðast rigndi fyrir alvöru hér 1971, en annars er þetta bara örlítill úði. Ef það yrði hins vegar alvöru íslensk rignng hér, tæki það ekki nema svona viku að eyðileggja byggingarnar! Vissuð þið að Lima er önnur þurrasta höfuðborg í heimi? Sú þurrasta er Kairó.
Við erum að pakka núna og klára síðustu kettlebells-póstana fyrir næsta ferðalag. Förum í flug í nótt/fyrramálið og eftir 12 tíma flug erum við í Madrid!! Allir orðnir spenntir og þó er ansi skrítin tilfinning að vera að fara frá Suður-Ameríku eftir þennan tíma. Það sem ég hlakka furðurlega mikið til, er að upplifa aftur að klósettpappír sé sjálfsagður á klósettum og að það megi líka setja hann í klósettið!! The little things often matter a lot... Gleymi því til dæmis aldrei hversu óstjórnlega glöð ég varð á flugvellinum í Kína þegar ég sá hvítt postulínsklósett!! Eftir að hafa notast við göt í jörðina í nokkra daga, þá er þetta hlutur sem gleður þig!!
Bókahillutæknin

Mér fannst við hæfi að hafa bókaorminn okkar til að sýna bókahillu-tæknina! Drengur sem las sjö bækur í bókasafni afa Ingimundar í fjögurra daga dvöl á Hóli.
Vinnunmennirnir
Þarna er verið að búa til steinana sem notaðir voru til að byggja þennan heilaga stað. Þeir bjuggu steinana til úr skeljasandi og leir. Aumingja mennirnir voru nú ekki mikið í ergonomiunni, vinnustellingarnar eru ekki til að hrópa húrra fyrir. Svo voru þeir gríðarlega stuttir í annan endann, því þeir þurftu frá unga aldri að bera þungar byrgðar, svo þeir urðu sterkir og stuttir. Sjaldan hærri en 1.50 á hæð.Þarna eru þeir að fórna
Það var hefð að fórna leirkerum fyrir guðina og þarna er verið að fórna einu stóru. Á því er mynd af hákarli til að sýna virðingu fyrir Móðurinni; Hafinu. Presturinn er sá sem er með málaða bláa grímu, og það eru víst mistök listamannsins sem hefur gleymt sér aðeins, því þeir höfðu eiginlega bara brúnan og rauðan lit sem þeir notuðu til skrauts. En stundum fer kreativitetið úr böndunum..
Perú-hundurinn

Húsakaup í Lima
Tuesday, July 7, 2009
Komin til Lima kl. hálf sjö að morgni!

Markaður

Ekki slæmt

Apríkósa í baði







