Þessi fallegi ofurhugi okkar er 10 ára í dag 22. desember (bloggið eitthvað að ruglast á dagsetningum og við látum þetta fylgja, það er sem sagt 22 des í dag)!!!!! Alveg stórfurðulegt að það séu orðin tíu ár síðan fótboltastrákurinn Arnór Ingimundur kom í heiminn. Við bjuggumst við honum 13. desember, en hann var sko ekkert að flýta sér í heiminn, kom 9 lööööööööööngum dögum seinna, 22. desember. Svaf vel fyrstu nóttina, en lét svo heldur betur hafa fyrir sér allar nætur, næstu tvö árin :) Þessa orku tókst okkur svo að beina að fótboltanum og nú er þessi gullmoli farinn að rúlla okkur forleldrunum upp þegar skorað er á hólm í fótboltaeinvígi!! Til hamingju með afmæli stóri strákur!!!
Til hamingju með afmælið Arnór. Kristó vinur Viktors segir bæ
ReplyDeleteArnór minn, til hamingju með afmælið í gær :-) Bestu jólakveðjur til ykkar allra frá okkur í Fellahvarfi 21.
ReplyDeleteRosa flottur Arnór afmælisstrákur!
ReplyDeletePassaðu þig samt á
B(r)asilíuslöngunum.
Kveðja, amma D
Rosa flottur Arnór afmælisstrákur!
ReplyDeletePassaðu þig samt á
B(r)asilíuslöngunum.
Kveðja, amma D